Snigil og Snekkjudæludreifari

  • Snigildreifari: Dreifari með snekkjudælu
  • Snigildreifari: Drifbúnaður
  • Snigildreifari: Drifbúnaður fyrir snigil
  • Snigildreifari: Snigill
  • Snigildreifari: Utanáliggjandi stigi
  • Snigildreifari: Vökvaknúin áfyllingalúga

Vélboða snigil- og snekkjudæludreifarinn er sérhannaður fyrir minkaskít og skít með mikið þurrefnisinnihald. Hann kemur með PTO knúinni snekkjudælu sem má nota til að hræra upp í haughúsum og til að taka upp í dreifarann.

Á dreifaranum er stór vökvaknúin lúga svo hægt sé að moka í hann með ámoksturstækjum eða dæla í hann með haugdælu. Í botninum er vökvaknúin snigill sem færir beinamassa sem vill setjast í botninn að dælunni.

Annar búnaður: Hjólabúnaður Twin flotdekk með bremsum, fullkomin ljósabúnaður, undirakstursvörn, aurhlífar, dráttarauga með snúning og hæðarmælir.

Stærðir 6-15 þúsund lítra.